Aukastörf dómara
Frumkvæðismál (2105126)
Allsherjar- og menntamálanefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
28.05.2021 | 76. fundur allsherjar- og menntamálanefndar | Aukastörf dómara Nefndin fékk á sinn fund Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra og Bryndísi Helgadóttur frá dómsmálaráðuneyti. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna. |
27.05.2021 | 75. fundur allsherjar- og menntamálanefndar | Aukastörf dómara Nefndin fékk á sinn fund Kjartan Bjarna Björgvinsson frá Dómarafélagi Íslands sem gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna. Nefndin fékk einnig á sinn fund Sigurð Tómas Magnússon og Ólöfu Finnsdóttur frá dómstólasýslunni. Gestir gerðu grein fyrir sjónarmiðum við málið og svöruðu spurningum nefndarmanna. Þá fékk nefndin á sinn fund Hjördísi Hákonardóttur frá nefnd um dómarastörf sem gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna. |